föstudagur, desember 15, 2006

Wiplash Girchild In The Dark

Þótt ég hlakki örlítið til að sjá þessa mynd, The Factory Girl, er ég skíthræddur við hana, og það af nokkrum ástæðum. Fyrir hið fyrsta gæti hún orðið, og verður mjög líklega, skítléleg, en það er mér í raun slétt sama um. Lúmskt vona ég að hún verði svo blaut ræpa að fólk á eftir að forðast hana eins og fólk forðast...já...blauta ræpu. Aðalástæða þess að ég voni að gæði hennar verði takmörkuð er að ég vil líklegast síst allra hluta í heiminum að Andy Warhol & The Velvet Underground & Nico & Candy Babe & allt heila verksmiðjupakkið verði að tískubólgu. Væri ekki ógnvekjandi ef besta band í heimi yrði gjörsamlega eyðilagt á svipaðan hátt og Johnny Cash var nauðgað með gaddavír í kringum frumsýninguna á Walk The Line? Ég forðast tilhugsunina....hvernig yrði líf mitt? Ekki furða að Lou Herra Reed hafi í töffaraskap sínum kallað alla sem komu nálægt myndinni hórur fyrir einhverju síðan. Heyrirðu það, Sienna Miller? Hóra. (Mér finnst Sienna Miller ágætisgella...ekki misskilja....en hóra er hún, víst Lou segir svo.)
Og hverjir eru einhverjir skitnir Weezer meðlimir að þykjast ætla að geta kóverað Heroin almennilega? Síðasta góða plata Weezer var Pinkerton. Eini maðurinn sem hefur kóverað Heroin vel er augljóslega Billy Idol, en hann tók upp á því að bæta línum úr Gloria þeirra Patti Smith og Van Morrison inn í lagið og gera það merkilega hallærislega elektrónískt og þuldi svo að sjálfsögðu yfir það guðdómleg orðin hans Lou Reed með sinni yndislegu maskjúlar röddu -og já- bætti við það þremur epískum mínútum.
Hayden Christiansen sem Bob Dylan? Fyrirgefið á meðan ég hlæ mig til dauða. Nógu illa fór hann nú með að vera einhver aumur geimgaur með geislasverð. (Sorrí Star Wars fanatics...ég skal ekki móðga Black Helmet Man aftur). Samkvæmt einhverju sem ég las af netinu gerðist Bob Dylan svo töff að kalla Hayden Christiansen einhverju mjög hræðilegu og niðrandi fyrir að reyna að leika sig. Sömuleiðis bannaði hann aðstandendum myndarinnar að nota nafnið sitt í myndinni og hótaði að kæra ef svo yrði gert, enda er karakterinn hans Hayden ekki kallaður Bob Dylan í framleiðsluferlinu, að minnsta kosti, heldur Bobby Quinn. Já, Bobby Quinn. Haha! Er líka smeykur með Guy Pearce sem Andy Warhol, en ég trúi ekki öðru en að hann klúðri þessu að minnsta kosti ekki á neinn fatalískan hátt. Guy Pearce er nebbla dáldið góður leikari.
Hér svo trailerinn af þessu öllu saman. Lítur út fyrir að vera eins mainstrímserað og hægt er. Á þetta ekki að vera smá innsýn í Andy Warhol verskiðjuna? Dröggý kynskiptinga, allsnakta pronografíska listmamenn, svolítið sturðala kynvillinga og ofurartfartplebba á sjöunda áratugnum í New York, vakandi allan sólahringnum með hjálp eiturefna skapandi mistilgerðlega og framúrstefnulega list? Af hverju er þetta ekki að minnsta kosti smá skerí, svolítið heillandi, hættulegt eða spennandi. Í The Doors gekk Oliver Stone svo langt að pretty much spila The Doors sem Backstreet Boys miðað við Velvets. Af trailernum að dæma er þessi heimur eins og Disneyland.

13 Comments:

Anonymous Halldór said...

Þú ert alltaf að væla. Nú vælirðu um það sem þú hefur reynt að gera frá því að ég kynntist þér verði að veruleika. Þú hefur alltaf reynt að hamra því inn hjá öllum Lou Reed sé maðurinn og VU það eina sem virkar.
Ég samt verð að vera efins um það að Weezer að covera Heroin. Einnig verð ég að efast um að þessi mynd verði góð og því held ég að þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af vþí að Heroin fari að sitja vikum saman í toppsæti á KissFM og FM957.

laugardagur, desember 16, 2006  
Blogger haukur hallsson said...

Já þetta er væll, en samt frekar sannfærandi og rökréttur væll verð ég að segja. Því hver vill lána ídolin sín tískubylgjum og hvar er sá réttþenkjandi maður sem vill ekki takmarka áhuga almennings á því besta í heimi? Því eins og Melvin Udall sagði sínum eigin orðum við Carol the waitress, þá gefur það manni ýmislegt að vera eini maðurinn á jörðunni sem veit hvað er það besta í heimi á meðan enginn annar fattar það.

Þegar búa á til svona mynd þarf að vanda valið á kallinum í brúnni. Svo þarf einfaldlega annað konsept en "við verðum að reyna að þóknast öllum og hafa myndinna eins aðgengilega og auðskyljanlega og hugsast getur". Og að skella eins hriplélegum og hæfileikalausum "leik"pésa (sem á það eina komplement, og það eina lélega komplement, að geta fengið brúnkbeljur í mínípilsum til að blotna) í heimsathyglina sem herra Bob Dylan?

Hann er svo mikil hóra (svona til að taka undir með Lou) að ég hugsa að meira að segja að enginn muni fatta hvern hann sé að reyna að stæla. Og hér eftir, þegar minnst er á Bobby Quinn, er átt við lélega stælingu á einhverjum. Það mætti smella því í Íslensku Orðabókina.

Ég ætla ekki einu sinni að hafa minnstu áhyggjur um að þessi mynd eigi eftir að sýna lélega heildarmynd af faktorý&tilheyrandi því hún á eflaust eftir að sýna það kolranga og öfugsnúna mynd af þessu öllu (til að þóknast ómeðvituðum almenningi, brúnkbeljum o.fl.), að okkur hinum getur ennþá fundist við eiga þetta útaf fyrir okkur.

Og þótt ég fíli Star Wars myndirnar meira en allt þá móðgaðist ég nákvæmlega ekki neitt og mun aldrei móðgast þegar rætt er um galla Star Wars myndanna (sem eru að sjálfsögðu óteljandi einungis vegna þess að George Lucas leikstýrir og skrifar handritið) og þá sérstaklega þegar rætt er um nýju trílógíuna og hvað þá þegar skeytt er á úrhrakið Hayden Christiansen sem mætti segja að sé alger Bobby Quinn í hlutverki Svarthöfða...

laugardagur, desember 16, 2006  
Blogger haukur hallsson said...

Svo á hann víst að heita Billy Quinn en ekki Bobby Quinn

laugardagur, desember 16, 2006  
Blogger Ivar Erik said...

Ég náttúrulega ýki töluvert í þessu eins og vanalega. Ég á engan veginn von á því að European Son eða Sister Ray verði spilað í bíó.

sunnudagur, desember 17, 2006  
Anonymous Eli the barrow boy said...

Hæ þetta er Elfar og ég get ekki beðið eftir að sjá hnakkana í banana-bol það verður ógeðslega fyndið ! gott stöff verður ekki mainstream a la megadeth !

sunnudagur, desember 17, 2006  
Anonymous eyy said...

haukur.. var þetta komment eða blogg?

sunnudagur, desember 17, 2006  
Blogger Brynhildur said...

Í fyrsta sinn sem þú kommentaðir á bloggið mitt sagðisti vilja verða íslenskufræðingur eða eitthvað svoleiðis, allavegna læra íslensku. Ég veit ekki hvernig staðan er í dag en

(Mér finnst Sienna Miller ágætisgella...ekki misskilja....en hóra er hún, víst Lou segir svo.)

Hvað er vitlaust í þessu?

Maður segir ekki "víst Lou segir svo" víst getur aldrei komið í staðinn fyrir FYRST. Ég þoooli ekki þegar fólk segir "víst þú segir að ég sé auli" ég gæti í alvöru ælt. Þetta fer mest í taugarnar á mér af öllum málfræðivillum sem fólk segir. Plís segðu fyrst..

mánudagur, desember 18, 2006  
Blogger Gummi said...

Víst er þó, að kóment þetta, er ákaflega bitchy...

mánudagur, desember 18, 2006  
Blogger Albert said...

Ég vona að þeir spili European Son, The Black Angel Death Song eða Sister Ray og ég vona að allir sjá að Cale er maðurinn bak við VU!

Annars finnst mér rosalega töff að Darth Vader fái fleiri hlutverk í bíómyndum eftir SW2, hann var rosalegur þar og vonast ég til að sama ástríða verður til staðar þegar hann leikur Dylan (svipaðir karakterar).

Annars voru The Doors nánast Backstreet Boys miðað við Velvets! Þeir spiluðu fjall af tökulögum sem framleiðendur og label eigiendur heimtuðu og margar af plötunum þeirra eru byggðar í kring um 2-3 sjúk lög. Frábært band engu að síður. Oliver Stone hefur alltaf rétt fyrir sér.

En hvernig er það, átti ekki annar Olsen tvíburana að leika í myndinni?

Annars finnst mér BEST Í HEIMI að Patrick Wilson fái að leika Cale. Eða annars finnst mér bara best í heimi að þessi gaur fái að leika eithvað því hann er fyndnasti gaur í HEIMI!!!! (tjékkið á öllum Weezer vídjóum máli mínu til stuðnings!). Ég hef svo sem aldrei verið það hrifinn af Brian Bell, en hann er vissulega svalur. Hvort hann meiki Lou Reed veit ég hinsvegar ekki!


hópferð í bíó

mánudagur, desember 18, 2006  
Blogger Gummi said...

Er önnur Olsen systranna betri leikkona en hin? Ágætis pæling...

þriðjudagur, desember 19, 2006  
Anonymous eysteinn said...

Er mammain betri leikkona en þú??!!
Ágætis pæling...

föstudagur, desember 22, 2006  
Blogger Albert said...

mér finnst eysteins pæling vissulega betri

nema þá að maður geti tekið pælingu guðmundar inní pælingu eysteins?

er mammaþín olsen systir?

ég gaf ykkur von sem varð að vonbrigðum, þetta er ágætis pæling

föstudagur, desember 22, 2006  
Anonymous Gunnar said...

Æi, Velvets sökka. Ofmetið band.

sunnudagur, desember 24, 2006  

Sendu inn athugasemd

Links to this post:

Create a Link

<< Home