Trouble With Deams
Í leiðakasti mínu í dag rakst ég á myndina The Third Man eftir Carol Reed þegar ég leiddi augum yfir lista yfir 250 bestu kvikmyndir allra tíma samkvæmt notendum kvikmyndabiblíunnar. Rann þá upp fyrir mér að mig hafði, af einhverjum ótútskýranlegum og út úr því furðulegum ástæðum, dreymt nóttina áður að ég hafði horft á hana. Heilt atriði sem mig hafði dreymt spilaðist fyrir mér í heilanum og ég man greinilega eftir öllum andlitinum, atburðarásinni, film-noir stílnum og meira að segja tónlistinni. Það sem er kannski skrítnast við þetta allt saman er það að ég hef aldrei séð umtalaða mynd. Ég vil spyrja að tvennu:
-Ætti ég að hafa áhyggjur af heilastarfsemi minni?
-Af hverju dreymir mig ekki eitthvað merkilegra en mynd sem ég hef ekki séð?


6 Comments:
Þegar þig dreymir eldföstmót og abstrakt form þá myndi ég hafa samband við ráðgjafa. Annars er líklegast að þú sért illa þjáður af kvikmyndafíkn og jólafrísboredomisma.
Í nótt dreymdi mig að ég væri á MH-balli með litlu systir minni sem btw er 6 ára. Af einhverjum ástæðum labbaði ég svo með systu uppí múla og skildi hana eftir og fór aftur á ballið. Þar var Geir Ólafs dyravörðu og þurfti ég að vinna hann í fótbolta sem ég gerði svo til að komast aftur inn.
Svo man ég ekki meir, en ekki tel ég þetta merkilegri draum en að dreyma bíómynd sem þú hefur ekki séð.
hey snilld halldór, systir þín var líka í draumnum mínum
mig dreymdi lalla og systur hans halldórs
við ættum öll að hafa áhyggjur af heilastarfsemi okkar, vi ðvitum aldrei hvað fjölmiðlar hafa að fela.
annars veit ég ekkert hvað ég á að segja
annars dreymir mig oftar systur hans Lalla en systur hans Dóra
Ertu eitthvað uppiskroppa með titla á færslurnar þínar?
Sendu inn athugasemd
Links to this post:
Create a Link
<< Home