Show me some meat and you'll have my time
Hlýt að langmestu leyti að vera að upplifa leiðinlegasta desember þessara sautján sem ég hef fengið að njóta. Ég hef tæplega komist út úr húsi, nema þá upp á spítala, og eytt restinni af mánuðnum í að vera hundveikur og sveittur og myglaður inni hjá mér, annaðhvort við að gera ekki neitt eða læra en oftast bæði. Til viðbótar hef ég verð óhæfur þess að setja ofan í mig mat þar sem hálskirtillinn minn hægri hefur verið það stór að hann þekur út leiðina sem maturinn þarf að fara ofan í maga. Ástandið hefur gert það að verkum að ég þarf að taka þrjú sjúkrapróf og klárast prófatíðin þ.a.l. tveimur dögum seinna en átti að gera. Þótt það hafi aldrei stefnt í nein afrek í einkunnum á staðfestinardegi verða einkunnirnar bókað enn lægri en þær hefðu orðið. Heilsan hefur þó skánað til muna og verð ég ferskur í nokkurra daga sælu og skemmtun eftir síðasta prófið mitt eða allt þar til ég fer í hálskirtlatöku þann 20. desember. Taka þá við 7-14 dagar, líklegast svona 16, miðað við lukku mína, í enn frekari rekkjuhangs og fæðuleysi. Og guð minn góður, þvílík tímasetning á þessu öllu saman...það er sko hlutir sem mig langar svo miklu, miklu meira til að vera að standa í.
Bíóhúsin hafa ekki séð mig í rúmar þrjár vikur. Það verður að teljast mjög óeðlilegt ástand. Hlýt að fá símtal frá einhverju þeirra innan nokkurra daga. Annars verð ég sár. Hringið bara fyrir þann 20. því þá verð ég óhæfur um mannleg samskipti. Bókstaflega.


5 Comments:
Bíóin sjá mig ekki heldur þessa dagana og þau geta sjálfum sér um kennt, þar sem þau virðast keppast um að sýna sem mestan sora yfir jólin.
Hvolfa viðurstyggilegu smáborgarsorpi og skíta margendurnýjaðri aðfangadagsælu yfir almúgann á jólatíma, á tíma samúðar og kærleiks, brunds og gamla jólakúksins.
Hvernig geturðu sagt þetta þegar Eragon er á leiðinni? Flags of our fathers 26. náttla beibí.
Ég hef því miður ekki Clint-trú á Flags... það sem á eftir að bjarga jólabíó er Tenacious D og Children of Men, snemma á nýju ári.
Svo ætla ég rétt að vona að íslensku fasistarnir með bíóvöldin á Íslandi ætli sér ekki að láta okkur deyja ellidauða í biðinni eftir Rocky Balboa og The Fountain.
Já og líka Eragon.
piss
Sendu inn athugasemd
Links to this post:
Create a Link
<< Home