...In a 60´s cover band
Þrátt fyrir að þykja mjög mikið til hljómsveitarinnar Mountain Goats koma, gat ég ekki annað en fagnað því með sjálfum mér, fyrir svona þremur vikum, að vera ekki einn þeirra sem næðu að tengja og þar af leiðandi fíla nýjustu plötu þeirra, Get Lonely. Nú eru breyttir tímar.
Hálskirtlatökur eru ógeð og hugsunin við að þurfa að eyða jólunum og eitthvað frameftir í því ástandi sem ég er í núna er enn ógeðslegri. Eyddi nóttinni í að vera með magapínu út af óþoli fyrir lyfjum sem eiga að flýta fyrir ferlinu og vaknaði því á 25 mínútna fresti til að skíta. Ógeðheitin tinduðu þegar ég sat ég klósettinu og fór að finna fyrir flökuleika ofan á hitt, og hóf að æla blóði í baðið. Bjargið mér.

8 Comments:
Þú átt alla mína samúð.
Mína líka maður! Sendi góðar hugsanir til að reka veikindin í burtu!
hahahahaha shii, það koma samt jól eftir þessir jól. Samt skal ég gefa þér góða hugsun
Ég heyri fólk oft segja við fólk sem er í vanda að það eigi að hugsa um brönin í afríku sem´fá ekki að borða.
Ég skil ekki hvernig það á að láta fólki líða betur að hugsa um fleira fólk sem líður ömurlega og svo er flestum sem æla blóði bar svona slétt sama um börnin í afríku það augnablik.
Þess vegna segi ég líttu á björtu hliðarnar, þú ert allavega ekki að pissa blóði.
takk, mér finnst hálf kósí að vita af þér ælandi blóði og kúkandi líffærum!
gleðilega hátíð
þetta er mjög áhugavert ástand, ég hef verið að spá í hvort þú finnur fyrir því að það vanti í þig kirtil? ..öðruvísi heldur en hálsbólga?
Annars gleðileg jól og muni þau vera sem minnst átakanleg á klósettinu.
Ég er semsagt með tvö opin sár í hálsinum og þ.a.l. er mjög sárt að kyngja.
En þú færð að borða eins mikinn ís og þú vilt, er það ekki? Það er alltaf plús!
Sendu inn athugasemd
Links to this post:
Create a Link
<< Home