A Good Woman is a Werewolf
Ég álása þér ekki fyrir að drepa mig því ég á það skilið. Er hvort eð er ekkert nema klaki bíðandi eftir að hann bráðni og fljóti ofan í holræsið og blandist sorpefnum og verði að einhverju öðru. Hugsanlega einhvers konar sorpmixtúru. Þá verður lífið fyrst almennilegt, finn loksins mína líka. Nei. Hættu nú alveg.
Já. Þegar ég er farinn að signa mig inn á blogger og hripa niður eitthvað sem ég myndi ósmeykur senda í heimskeppni í heimsku og hálfvitaskap hlýtur að vera prófatíð. Að minnsta kosti nálægt prófatíð. Ég á óopnaðan Doritospoka og bíð eftir félagsskap og mér leiðist biðin. Bíð enn eftir því að hætta að vera veikur þar sem það ástand staldar enn við síðan á föstudaginn fyrir viku og neitar að hlaupa á brott. Loks þegar það hleypur svo þarf ég hlaupa í stærðfræðipróf og í framhaldi af því dönskupróf og svo spænsku og svo framvegis. Svo kemur helgi sem ég nýti í að læra fyrir íslenskupróf og enskupróf. Svo verður glatt á gjalla. Glatt á gjalla. Jú...það er víst til. Eyddi deginum í stærðfræði og hlustun jólaplatna. Low & Bright Eyes & shit. Held ég sé kominn í jólaskap óvenju snemma. Hentugt því ég þarf að taka jólin sjálf út fyrr þar sem ég fer í hálskirtlatöku þann 20. og verð rúmliggjandi yfir hátíðirnar. Jájá. Áðan skrifaði ég um bitran fylliraft. Þeir eru töff.

3 Comments:
gamla versionið er fyrir neðan...
en ég samgleðst þér í biturð vegna prófanna
ef það er einhver tími fyrir utan jólin sjálf (og líka þegar þannig liggur á manni undir áhrifum áfengis), sem ég verð væminn og vildi að ég ætti kærustu, þá er það í prófum
í prófum á maður enga vini, vinirnir eru að gera það sem maður ætti að vera að gera; læra
(hefði getað verið svona viðbót við The Emo Video, en það er samt alveg eitthvað til í þessu)
fannst ég eiginlega knúinn til að commenta á þessa færslu líka, þar sem ég veit ekki hvorri þú munnt eyða og þá mun ekkert vera eftir um munnmæli mín.
annars ertu nú ekkert svo bitur. þú ert bara að þykjast. því þér finnst töff að vera bitur.
mér finnst líka töff að vera bitur, þessvegna læt ég eins og ég sé rosalega bitur út í lífið.
ég er hinsvegar bara bitur út í sjálfan mig fyrir að hafa ekki lært betur á þessari önn. (sem skýrir frammistöðu mína í stærðfræði prófinu).
en eftir próf bíð ég þér í áfyllingu á iPodinn þinn, TradeFair kaffi og að öllum líkindum Bónus piparkökur ef að mamma ætlar að sleppa því aftur að baka smákökur!
ekki nema ég baki bara sjálfur
njóttu prófanna
Þú kommentar incredibly fuckin' gay.
Sendu inn athugasemd
Links to this post:
Create a Link
<< Home