laugardagur, desember 02, 2006

A Good Woman is a Werewolf

Ég álása þér ekki fyrir að drepa mig því ég á það skilið. Er hvort eð er ekkert nema klaki bíðandi eftir að hann bráðni og fljóti ofan í holræsið og blandist sorpefnum og verði að einhverju öðru. Hugsanlega einhvers konar sorpmixtúru. Þá verður lífið fyrst almennilegt, finn loksins mína líka. Nei. Hættu nú alveg.

Já. Þegar ég er farinn að signa mig inn á blogger og hripa niður eitthvað sem ég myndi ósmeykur senda í heimskeppni í heimsku og hálfvitaskap hlýtur að vera prófatíð. Að minnsta kosti nálægt prófatíð. Ég á óopnaðan Doritospoka og bíð eftir félagsskap og mér leiðist biðin. Bíð enn eftir því að hætta að vera veikur þar sem það ástand staldar enn við síðan á föstudaginn fyrir viku og neitar að hlaupa á brott. Loks þegar það hleypur svo þarf ég hlaupa í stærðfræðipróf og í framhaldi af því dönskupróf og svo spænsku og svo framvegis. Svo kemur helgi sem ég nýti í að læra fyrir íslenskupróf og enskupróf. Svo verður glatt á gjalla. Glatt á gjalla. Jú...það er víst til. Eyddi deginum í stærðfræði og hlustun jólaplatna. Low & Bright Eyes & shit. Held ég sé kominn í jólaskap óvenju snemma. Hentugt því ég þarf að taka jólin sjálf út fyrr þar sem ég fer í hálskirtlatöku þann 20. og verð rúmliggjandi yfir hátíðirnar. Jájá. Áðan skrifaði ég um bitran fylliraft. "Sat í fimmtán mínútna eða tveggja sígarettna fjarlægð frá heimili mínu og dró smátt og smátt í mig þá sjöttu og tók fyrsta sopann af rammsterku vodka. Í kvöld ætlaði ég að fleygja mér í náttúrunnar rúm og verða drukkinn með engum nema sjálfum mér af frátöldum einstaka fuglum sem myndu blístra næturblús eins og drukknir negrar í svartnætti á fjórða áratugnum. Ég gat ekki beðið eftir að himininn yrði nætursvartur því helvítis fegurðin í rauðljómanum minnti allt of sterkt á varnirnar hennar Lenu. Setti sígarettupakkann því í vasann og tók stóran sopa af vodkanu til að halda á mér hita. Lagðist niður og lokaði augunum og ákvað að ég skyldi sofa burt þennan rúma hálftíma sem ætti eftir að líða til myrkurs." Mér finnast bitrir fylliraftar skemmtilegir.

1 Comments:

Blogger Albert said...

fokking ógeð

góðar jólaplötur enda lét ég þig fá þær...allavega low. man ekki með bright eyes.

annars er málið að flytja af heiman rétt fyrir miðnætti á þorláksmessu og sameinast í Heiðmörk þar sem ég mun halda snemmbúið áramóta partí.

meigum við búast við skáldsögunni þinni í jólagjöf?

mánudagur, desember 04, 2006  

Sendu inn athugasemd

Links to this post:

Create a Link

<< Home