Ain't Hard To Tell
Igby Goes Down er ein af þeim myndum sem hefur þau áhrif á mig að ég veit ekki almennilega hvað mér finnst um hana eftir fyrsta áhorf. Ég er samt ekki að tala um hvort mér finnist hún góð eða léleg - ég veit að mér finnst hún góð - meira svona, góð eða frábær, góð eða stórkostleg eða góð eða ein af bestu myndum í heimi. Aðalástæðan fyrir því er, held ég, sú að ég tengi aðeins of mikið við einhvern karakter í myndinni að einhverju leyti, og eyði einhverra hluta vegna alltof miklum tíma í að hugsa um einhverja ákveðna hluti sem ég aðalkarakterinn eigum sameiginlegt. Þarf nauðsynlega á öðru áhorfi á halda sem fyrst. Það er ekki eins og ég hafi ekki tímann, er meiraðsegja búinn að glápa þrisvar sinnum á Elf á síðustu tveimur dögum.
Þegar ég lendi í þeirri aðstöðu að setja fram á mína skoðun á einhverju eins og upphafi veraldar eða mannkys góma ég sjálfan mig undantekningalaust í þeirri aðstöðu að hafa nákvæmlega ekki neitt að segja. Hugsa að ég sé einfaldlega alltof sjálfhverfur til að nenna að velta fyrir mér upprunna allra eða jafnvel alls.
Ef þið upplifið þessa færslu sem þvælu skil ég ykkur vel, bara eitthvað þvaður sem hefur troðið sér inn fyrir á meðan hugsanir mínar hringsólast nánast algjörlega það sama.

4 Comments:
sjálfhverfur er snortinn maður sagði einhver
svo að þú ert í góðum málum
annars er þessi færsla tóm þvæla
maður getur næstum því séð það á blogginu þínu að þú hafir misst hálskirtlana. og það einfaldlega vegna aukinnar tilhneyginginu til að nota bókstafinn E í fyrstu málsgrein
ég taldi 53
haukur hefur mikið að gera!
Sendu inn athugasemd
Links to this post:
Create a Link
<< Home