laugardagur, nóvember 18, 2006

Does it look like I give a damn?

Casino Royale var, eins og vitað var fyrir, mjög hot. Daniel Craig er steyttur hnefi og kann að leika Bond alveg eins vel og hinn öldukenndi Martin Campell kann að leikstýra honum. Væri það ekki fyrir Vin Dieselíska vöðvamassann sem Craig ber utan á sér hefði hann getað komist mjög nærri Connery en situr í sömu hillu og Pierce Brosman þarna rétt fyrir neðan. Sit samt alltaf jafn sár eftir Bondgláp að myndirnar skuli ekki hreyfa jafnræskilega við mér og fyrir einhverjum 6-8 árum þegar ég hélt Bondmaraþon í hvert skipti sem ég lá heima með flensu. Þrátt fyrir æskuminningarnar gekk ég út gay as a fag og skemmdi yfirdrifið töff lokaatriðið ekki fyrir.

Kvikmyndir virðast vera það eina sem gengur á í hausnum á mér þessa dagana sem ég er reiðubúinn til að deila með restinni af heiminum...býst svosem ekki við því að það taki einhverjum breytingum á næstunni a.m.k...

6 Comments:

Anonymous eys said...

M er sjúklega heit..

laugardagur, nóvember 18, 2006  
Blogger Albert said...

This comment has been removed by a blog administrator.

mánudagur, nóvember 20, 2006  
Blogger Albert said...

Er ekki sama kelling að leika M eins og undanfarið?

mánudagur, nóvember 20, 2006  
Blogger Gummi said...

Judy Dench jú. Hún er hot as a lot of pot in Scot-land.

þriðjudagur, nóvember 21, 2006  
Blogger haukur hallsson said...

Mér finnst hann ekki nógu svona bond-myndarlegur og Pierce Brosnan og hann er aðeins of harður til að ná svona sjentilmenni eins og connery

En góð mynd. Leikstýrði ekki Martin Campell líka GoldenEye?

miðvikudagur, nóvember 22, 2006  
Blogger Ivar Erik said...

Jújú. Sammála þér með Danna.

miðvikudagur, nóvember 22, 2006  

Sendu inn athugasemd

Links to this post:

Create a Link

<< Home